top of page

Björgunarsveit Hafnarfjarðar

Björgunarsveit Hafnarfjarðar hefur að baki yfir 50 ára sögu af björgunarstarfi og er ein stærsta og öflugusta björgunarsveit landsins. Eins og flestir vita búum við Íslendingar oft við óblíð náttúruöfl og ófáir hafa týnt lífi af völdum sjóslysa, snjóflóða, jarðskjálfta, eldgosa og annarra náttúruhamfara. Það er þess vegna sem björgunarsveitir landsins gegna mikilvægu hlutverki.

 

Björgunarsveit Hafnarfjarðar hefur sérstöðu meðal björgunarsveita landsins en hún er sú eina sem notast við sporhunda þegar leitað er af týndu fólki. Þess má geta að á milli 1970 og 2005 hafa sporhundar eins og Perla hjálpað sveitinni að finna og bjarga lífum yfir 100 manns. 

Verkefnið

 

Markmið okkar er að hlaupa Seville maraþonið í febrúar næstkomandi og safna með því styrkjum sem síðan renna í heild sinni til Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. Með þessu vonumst við til að safna fyrir þjálfun og uppihaldi á nýjum sporhundi sveitarinnar, Perlu, en vegna efnahagsástandsins á Íslandi hefur það ekki gengið sem skyldi. Björgunarsveitin hefur notast við sporhunda í yfir 50 ár og hafa þeir bjargað fjölda mannslífa

MÁLEFNIÐ

bottom of page